Þessir skilmálar gilda frá 27. nóvember 2006.
I. ALMENNIR SKILMÁLAR
1. Þessar reglur og skilmálar gilda á milli þín, vörukaupanda, og okkar, ShopUSA Inc. Skráning vörunnar hjá ShopUSA jafngildir skuldbindingu þinni um að hlíta þeim almennu kjörum og skilmálum sem við setjum um notkun þjónustunnar.
2. ShopUSA er einungis vörumiðlun og þjónustar ekki vöruna og ber ekki ábyrgð á henni eftir afhendingu. Þú ert hvattur til að kynna þér rækilega alla skilmála seljanda vörunnar, þar með talið ábyrgðarskilmála og rétt þinn til að skila vörunni og fá hana endurgreidda. Það er á þína ábyrgð að vara sem flutt er til landsins sé lögleg og uppfylli þá skilmála og kröfur sem opinberir aðilar á Íslandi setja hverju sinni. Þú átt enga kröfu á ShopUSA ef varan reynist ekki hæf til innflutnings eða fæst ekki samykkt.
3. Ef vara er við móttöku í Virginia Beach að okkar mati gölluð eða löskuð þá áskiljum við okkur rétt til að hafna móttöku vörunnar. Móttaka vörunnar jafngildir ekki því að við höfum gengið úr skugga um að hún hafi ekki verið gölluð eða löskuð við mótttöku. Ef við áframsendum gallaða vöru, þá undanskiljum við okkur allri ábyrgð á ástandi vörunnar þegar hún verður afhent þér. Ef þú biður okkur um að áframsenda ekki vöruna, getur þú einungis farið fram á það við okkur að við sendum vöruna á þinn kostnað á áfangastað innan Bandaríkjanna, en í slíkum tilvikum undanskiljum við okkur einnig allri ábyrgð á ástandi vörunnar þegar hún verður afhent á viðkomandi áfangastað. Þótt við sendum þér ekki tilkynningu samkvæmt framangreindu ábyrgjumst við ekki að vara sem við tökum á móti og áframsendum sé ávallt í lagi.
4. Við áskiljum okkur rétt til að skoða sérstaklega og hafna vöruskráningu, móttöku eða afgreiðslu:
a. ef varan er ekki merkt nafni viðtakanda á Íslandi
b. ef vörusending hefur ekki áður verið skráð á heimsíðu ShopUSA
c. ef varan rúmast ekki í 40 feta gámi.
d. ef verðmæti vörunnar er umfram USD 10,000
e. ef við teljum að óheimilt sé að flytja vöruna til Íslands
f. ef á vöruna hafa verið lagðir sérstakir verndartollar.
g. ef flutningur, tollur og VSK er hærri en afgreiðslugjaldið.
h. hafna tryggingu ef varan er notuð, eða ef hún er ekki send í upprunarlegum pakkningum frá framleiðanda. Tilkynna þarf um tjón á tryggðri vöru innan 15 daga frá afhendingu
5. Ef vara hefur ekki borist okkur innan 60 daga frá skráningu þinni, þá áskiljum við okkur rétt á að afskrá vöruskráninguna þína.
6. Við áskiljum okkur rétt til að endurreikna gjald vegna skráningarskyldra ökutækja, ef í ljós kemur að gjaldið dugir ekki fyrir kostnaði og gjöldum.
7. Ef vara er ekki sótt í vörugeymslu okkar á Íslandi innan 3 mánaða frá skráningardegi, þá áskiljum við okkur rétt til að ráðstafa vörunni eða farga henni. Þrátt fyrir það áskiljum við okkur rétt til að innheimta þann kostnað sem hefur hlotist af móttöku, flutnings og tollafgreiðslu vörunnar.
8. Ef tollstjóri hafnar reikningi vörunnar og/eða tollstjóri ákvarðar tollverð vörunnar með öðrum hætti, þá áskiljum við okkur rétt til að breyta afgreiðslugjaldinu hlutfallslega í samræmi við ákvörðun tollstjóra.
II. GREIÐSLUSKILMÁLAR
9. Á vefsíðu okkar er reiknivél sem áætlar verð vörunnar í þínar hendur á Íslandi. Reiknivélin reiknar afgreiðslugjald á Íslandi út frá FOB verði vörunnar sem þú slærð inn í reiknivélina. Summa afgreiðslugjaldsins og FOB verðsins er sú fjárhæð sem þú þarft að greiða fyrir vöruna og þjónustuna, þó með fyrirvara um breytingu á tollgengi fram að tollafgreiðsludegi.
10. FOB verð er reikningsverð vörunnar að meðtöldum söluskatti og flutningskostnaði innan Bandaríkjanna til vöruhúss okkar í Virginia Beach. Vörur í Bandaríkjunum eru venjulega auglýstar án söluskatts og án flutningskostnaðar. Það er því mikilvægt að þú bætir söluskatti og flutningskostnaði innan Bandaríkjanna við vöruverðið, þegar það á við.
11. Afgreiðslugjaldið er reiknað út frá Tollgengi . Tollgengi er
síbreytilegt og hefur áhrif á afgreiðslugjaldið, til hækkunar eða lækkunar. Að öðru leyti er verðið til þín endanlegt verð eins og það kemur fram í reiknivélinni og á staðfestingu skráningar frá okkur.
12. Þú berð ábyrgð á greiðslu afgreiðslugjaldsins til okkar, hvort sem varan er afhent þér eða ekki. Varan fæst ekki afhent nema gegn greiðslu afgreiðslugjaldsins. Gjalddagi er þann dag sem varan er móttekin í vöruhúsi í Virginíu. Við áskiljum okkur rétt til að innheimta dráttarvexti 15 dögum eftir gjalddaga skv. III. kafla vaxtalaga nr. 38/2001. Einnig áskiljum við okkur rétt til að innheimta geymslugjald hafi varan ekki verið sótt innan 7 daga frá þeim degi sem komutilkynning var send til þín.
13. Við áskiljum okkur rétt að afhenda vöruna öðrum en þér á tilgreindum afhendingarstað, enda verði kvittað fyrir móttöku hennar.
15. Ef þú hefur athugasemdir við afgreiðslugjaldið verður þú að láta okkur vita innan 30 daga frá gjalddaga, annars lítum við á að þú hafir samþykkt það, nema sérstakar aðstæður réttlæti töfina.
16. Við höfum heimild til þess að fara fram á að þú setjir tryggingu fyrir greiðslu allra gjalda sem til hafa fallið eða til munu falla vegna notkunar þinnar á þjónustu okkar, enda sé slík trygging eðlileg miðað við aðstæður allar.
17. Flutningsskilmálar Eimskips og skilmálar TVG Zimsen eiga við um allar vörusendingar með ShopUSA
Ágreining, sem kann að koma vegna skilmála þessara, skal reka í Virginíufylki.