Amazon   

Cabelas

Childrens Place

Coldwater Creek

Crate & Barrel

Disney Store
Drugstore
Forever 21

eBay

JC Penney

JC Whitney

JCrew

Music 123

Nordstrom

Nu Skin

PC Mall

Pottery Barn

Restoration Hardware

Rooms To Go

Sears

Target

Tirerack

Toys R Us

Urban Outfitters

Victoria´s Secret

Wal Mart

Williams Sonoma

Z Gallerie


CB2
K5
QVC
SLP
1. Hvað kostar varan komin heim til Íslands?
Þú getur áætlað verðið með því að nota reiknivélina efst á síðunni.   
"Samtals gjöld kr" er sú upphæð sem þú
greiðir til ShopUSA með greiðslukorti (Euro eða VISA) þegar varan hefur verið móttekin í vöruhúsi í Virginia Beach (sjá nánar lið 5 varðandi stærðarmörk sendingar).  Þú sérð einnig heildarverð vörunnar en það er samtala þess sem þú greiðir ShopUSA og netversluninni.

Reiknivélin efst á síðunni auðveldar þér verðsamanburð á Íslandi.   Gættu þess að setja vöruna þína í réttan flokk, sjá svör við spurningu nr. 2 hér að neðan

Ef þú slærð inn aukastafi (cent) gættu þess að reiknivélin gerir greinarmun á punkti og kommu eftir því hvernig tölvan þín er stillt.  Þú gætir fengið upp villu ef þú notar rangt tákn til að skilja að aukastafi.

2. Hvaða vöruflokki tilheyrir varan sem ég pantaði?
Reiknivélin tekur sífelldum breytingum en eftirtaldir flokkar eru m.a. í reiknivélinni:

Fatnaður
Hljóðfæri
Myndavélar og úr
Barnabílstólar og Kerrur
Leikföng
Reiðhjól
Íþrótta- og tómstundavörur
Rafhlöður
Bækur
Raftæki minni en 1 m3
Raftæki stærri en 1 m3
Húsgögn minni en 1 m3
Húsgögn 1 - 3 m3
Grill
Nuddpottur
Handverkfæri
Tölvur og tölvubúnaður
Fartölva
Ipod
Hugbúnaður, leikir og DVD myndir
CD-RW / DVD RW án stefgjalda
Bíll vél stærri en 2000 CC
Bíll vél minni en 2000 CC
Pallbíll minni en 25 cbm
Vélhjól sleðar og fjórhjól
Fornbíll eldri 40 ára
Húsbíll minni en 65 m3
Húsbíll minni en 85 m3
Sláttutraktor
Fellihýsi
Pallhús minna en 25 m3
Golfbíll rafmagnsknúinn
Golfbíll bensín / gas drifinn
Hestvagn / 5th wheeler
Bátar styttri en 17 fet
Bátar milli 17 og 27 fet
Varahlutir fyrir bíla
Auka hlutir fyrir bíla
Tires
Aðrar vörur minni en 1 cbm
Aðrar vörur stærri en 1 cbm
Scooter minni hraði en 15 km á klst
Small motorcycle under 49 cc - spead more than 15 km á klst
Nutritions - Vitamin
Special permit merchandice

Gættu þess að velja rétta vöruflokkinn við skráningu vöru og í reiknivélinni til að áætla heildarverðið.   Veljir þú rangan flokk, áskilur ShopUSA sér rétt til að innheimta afgreiðslugjald samkvæmt raunverlulegum vöruflokki.  Ef þú ert í vafa í hvaða vöruflokki varan er skaltu senda okkur tölvupóst á Service@ShopUSA.is og við svörum þér eins fljótt og kostur er.

3. Hvernig fer ég að?
a) Þú stofnar þig sem nýjan notanda hjá ShopUSA og færð úthlutað s.k. "Suite númeri".
 
b)  Þú kaupir vöru af hvaða verslun sem er  í USA og lætur senda vöruna til ShopUSA, 1424 Baker Road, Virginia Beach, VA 23455 merkta nafni þínu og "Suitie númeri".

b) Þú skráir vöruna á vefsíðunni hjá okkur (rauður takki efst á síðunni)

Við sjáum svo um framhaldið, greiðum öll gjöld og afhendum þér vöruna. Þú getur ávallt rakið vöruna með því að smella á rekja vöru linkinn á forsíðunni.

Með því að smella hér getur þú lesið leiðbeiningar okkar um netverslun.

5. Er afgreiðslugjaldið jafnt fyrir allar vörur, óháð rúmmáli, þyngd, tollflokkum og vörugjaldi?
ShopUSA gerir mjög flókið ferli einfalt með því að beita jöfnun.  Þannig þarft þú ekki að velta fyrir þér þyngd, rúmmáli, tollflokkum eða vörugjöldum nema í þeim tilfellum sem sendingin er stærri en 1/2 rúmmeter. Reiknivélin áætlar heildarverðið til þín með jöfnunaraðferð.  

Flugfrakt:
Allar sendingar sem eru minni en 50 cm á hverri hlið eru sjálfkrafa sendar með flugi til Íslands án auka flutningskostnaðar.  Þú getur fengið stærri sendingar sendar með flugi en þá er kostnaðurinn USD 400 per rúmmeter (tekið er mið af ummáli heildarsendingar).   Þegar þú skráir vöruna (rauði takkinn efst á síðunni), þá getur þú beðið um að sendingin verði send með flugi, jafnvel þó hún sé stærri en 50cm viðmiðið.  

Dæmi: 
Sending sem er 50 cm x 50 cm 50 cm = 0,125 m3 er send án aukakostnaðar 
Sending sem er 1m x 50 cm x 50 cm = 0,25 m3 kostar $100 aukalega í flugfrakt en ekkert aukalega í sjófrakt.

Sjófrakt: 
Sending sem eru minni en 0,5 rúmmetrar er send án auka flutningskostnaðar.  Stærri sendingar kosta USD 200 per rúmmeter.

Dæmi:
Sending sem er 1 m x 1 m x 0,5 m = 0,5 m3  er send án aukakostnaðar.
Sending sem er 1 m x 1 m x 1 m = 1 m3 kostar $200 aukalega í sjófrakt.
 
Þyngd hefur ekki áhrif á fraktverð til Íslands.

6. Eru öll gjöld innifalin?
Já, öll gjöld eru innifalin, þar meðtalin móttaka í USA, skráning, flutningur, virðisaukaskattur, tollur, vörugjöld og heimsending. Ef um er að ræða stóra sendingu eins og t.d. stór húsgögn og golfbíl þá getur ShopUSA farið fram á að sendingin verði sótt. Athugaðu að endanlegt afgreiðslugjald miðast við tollgengi þann dag sem varan er tollafgreidd, en ef gengisbreytingar eru litlar (innan við 5%) og varan kostar minna en USD 2000, þá stendur ShopUSA við það verð sem gefið var upp við skráningu vöru.

7. Er virðisaukaskattur innifalinn?
Já, VSK er innifalinn í afgreiðslugjaldi ShopUSA   Virðisaukaskattur leggst á alla innflutta vöru.  Virðisaukaskattur er 24,5% af flestum vörum.

8. Nýtist virðisaukaskattur sem innskattur?
Sömu reglur gilda um meðferð VSK af vörum sem afgreiddar eru af ShopUSA og aðrar vörur.  Þú getur beðið um tollskýrslu við skráningu vörunnar og þá kemur virðisaukaskattur sundurliðaður á tollskýrslunni. Sjá nánari upplýsingar á www.tollur.is því mismunandi VSK leggst á vöruflokka.

9. Hvenær greiði ég vöruna?
Erlenda vefverslunin skuldfærir greiðslukort þitt við vörukaup. 
ShopUSA innheimtir afgreiðslugjald með skuldfærslu á greiðslukort þegar varan er móttekin í vöruhúsi í Virginia Beach.  Ef varan berst ekki i vöruhúsið, færist engin kostnaður á greiðslukortið þó svo að varan hafi verið skráð.

10. Hvert á ég að láta senda vöruna?
Varan sem þú kaupir á netinu þarf að berast í vöruhús ShopUSA í Virginia Beach:

Nafn þitt (t.d. Jón Jónsson)
ShopUSA - 1424 Baker Road
Suite ISxxxx (t.d. IS1234)
Virginia Beach, Virginia, 23455
Tel: 757 641 3696

VA stendur fyrir Virginia sem er fylkið (state) og 23455 er póstnúmerið (zip-code).  Þú færð úthlutað "suite númeri" þegar þú skráir þig sem notanda hjá ShopUSA. 

Gættu þess vandlega að láta merkja vöruna með nafni þínu og "Suite númeri" svo við getum komið henni í þínar hendur.  

Athugaðu að fylla  ekki inn í reit sem er ætlaður til að koma gjafaskilaboðum á framfæri, því þá er enginn reikningur sendur með vörunni og án reiknings er ekki hægt að tollafgreiða vöruna.

11. Hvað tekur langan tíma að fá vöruna heim?
Við sendum pakka þar sem hver hlið er styttri en 50 cm með flugi en stærri sendingar með sjófrakt til Íslands. Hægt er að velja flug eingöngu þegar skráð er, þannig að ef varan fer yfir hámarksstærð fyrir flug þá er hún mæld upp og aukakostnaður leggst á (sjá nánar í lið 5 hér að síðunni). Flugsendingar eru alla laugardaga og þarf vara að berast fyrir 12:00 á miðvikudegi. Eimskip siglir frá Norfolk á föstudögum aðra hverja viku og þarf varan að hafa borist fyrir 17:00 á mánudegi í sömu viku og skip fer frá Newport News,VA. Áætluð afhending á flugsendingum eru 6 dagar og sjófraktarsendingum tæpar 3 vikur - þetta miðast við þann dag sem fara frá vöruhúsi okkar í Virginia Beach.

12. Get ég skilað vörunni aftur til seljanda ?
Þegar þú skráir vöruna hjá ShopUSA (strax eftir vörukaup) þá getur þú hakað við að þú viljir getað endursent vöruna til Virginia Beach.  Gjaldið er 2% af kaupfjárhæð eða 350 krónur að lágmarki.

Skilaréttur fylgir flestum vörum sem seldar eru á Netinu í Bandaríkjunum.  Í mörgum tilfellum gefst kaupendum kostur á að endursenda vöruna án endurgjalds frá Virgina Beach til seljanda.  Þetta er mikilvægt ef t.d. fatnaður er ekki af réttri stærð, ef vara er gölluð eða ef bilun kemur fram á meðan vara er í ábyrgð.   

Ef þú hakar við í skráningu hjá ShopUSA að þú viljir eiga rétt á að skila vörunni, þá getur þú sent okkur email innan 30 daga frá afhendingu og við getum endursent vöruna til Virginia Beach. Það fer svo eftir skilmálum seljanda hver greiðir fraktina innan Bandaríkjanna.  Ef vöru er skilað og önnur álíka er fengin í staðinn mun ShopUSA ekki innheimta afgreiðslugjöld.  Það fer eftir ákvörðun tollstjóra hvort kaupandi er þá undanþeginn tollum og virðisaukaskatti, en dæmi eru um að tollstjóri hafi fellt niður og/eða endurgreitt gjöld í þeim tilfellum. 

13.  Hvað með ábyrgð og þjónustu á vörunni og hve langur er skilaréttur?
Þú skalt kynna þér vel ábyrgðarskilmála verslunar í USA áður en vara er keypt.  Einnig skaltu kynna þér rétt þinn til að skila og endursenda vöruna.  Skilaréttur er mjög misjafn, í sumum tilfellum 30 dagar en í öðrum tilfellum 12 mánuðir, og allt þar á milli. Hafðu hugfast að það líður nokkur tími 
frá því að seljandi sendir vöruna og þar til hún berst þér á Íslandi. Athugaðu líka hvort einhverjir taki að sér að þjónusta vöruna á Íslandi.   Ekki er öruggt hvort tollur og virðisaukaskattur fáist endurgreiddur frá hinu opinbera á Íslandi ef vara er endursend. Ekki er heldur víst að verslunin endurgreiði flutningsgjald og annan kostnað.  ShopUSA er einungis vörumiðlun og getur því miður ekki ábyrgst vöruna eftir afhendingu og býður ekki viðgerðarþjónustu, kennslu eða þjálfun í notkun hennar. 


14. Get ég verslað frá öðrum verslunum í
USA en þeim sem eru tengdar ShopUSA síðunni?
Já, þú getur verslað við allar netverslanir OG verslanir í Bandaríkjunum, fyrir því eru engin takmörk.  Varan verður þó að vera lögleg á Íslandi, sbr. skilmála ShopUSA. Þú getur notað leitarvélarnar neðst til hægri á forsíðunni. t.d. MySimon, til að finna hver selur sambærilega vöru lægstu verði á netinu. 

15.  Get ég fylgst með því hvar varan er stödd hverju sinni?
Flestir seljendur senda þér staðfestingu á tölvupósti um að vara hafi verið send frá seljanda. Oftast fylgir þá sendingarnúmer flutningsaðila, oft kallað “tracking number”.   Á vefsíðum flestra hraðsendingarþjónusta er hægt að slá inn “tracking-number” og fá upplýsingar um hvar varan er stödd hverju sinni, allt þar til varan hefur verið afhent í vöruhúsi ShopUSA í VA Beach, VA
.

Með því að smella á "rekja vöru" takkann efst á síðunni er hægt að fylgjast með því hvort varan hafi verið móttekin í VA Beach og hvenær hún er væntanleg til afhendingar á Íslandi.

16. Hvað gerist ef vara er send í vöruhús ShopUSA en ég gleymi að skrá vöruna hjá ShopUSA?
ShopUSA á erfitt með að finna hver er eigandi vörunnar ef varan hefur ekki verið áður skráð hjá ShopUSA, og sérstaklega ef "suite númer" kemur ekki fram á reikningi eða límmiða.  Ef ShopUSA getur ekki fundið hver eigandi vörunnar er, þá er hún geymd í vöruhúsi þar til upplýsingar berast um eiganda vörunnar.  Þess vegna er mjög mikilvægt fyrir þig að smella á rauða takkann "Skrá vöru" efst á síðunni þegar þú hefur keypt vöru af netverslun og skrá "suite númer" í heimilisfang hjá seljanda.

17. Hvernig get ég verið viss um að pöntun mín hjá netverslun hafi heppnast?
Flestar netverslanir munu senda þér staðfestingu með tölvupósti um að pöntun hafi verið móttekin, greiðslukort þitt skuldfært, varan hafi verið til á lager og upplýsingar um áætlaðan afhendingartíma í vöruhús ShopUSA í Norfolk.  Ef þessar upplýsingar berast þér ekki, þá er líklegt að pöntunin hafi ekki farið í gegn og því mun engin vara verða send í vöruhús ShopUSA.  Í því tilfelli skaltu athuga hvort greiðslukorti þínu hafi verið hafnað.  Þá getur þú sent okkur póst á Service@ShopUSA og við mun aðstoða eftir fremsta megni.  Vinsamlega skráðu ekki vöruna hjá okkur fyrr en þú ert viss um að pöntunin hjá netversluninni hafi gengið eftir.

18.  Hvað þarf ég til að versla með milligöngu ShopUSA?
· Tölvu með vafrara og tengingu við Internetið. 
· Kreditkort með úttektrarheimild í erlendri mynt fyrir þeirri fjárhæð  sem varan kostar í bandaríkjadollurum.
· Að láta senda vöruna í vöruhús okkar í
Norfolk, merkta þér. 
. Að skrá vörusendingu hjá okkur.

19.  Hve háir eru tollar og vörugjöld á innfluttar vörur frá Bandaríkjunum?
Tollur er innifalinn í afgreiðslugjaldi ShopUSA.  Tollar frá Bandaríkjunum eru mismunandi eftir tegund og eðli vöru.  Kaupandi getur kynnt sér tolla og vörugjald hjá Tollstjóranum í Reykjavík og á www.tollur.is   Algengt er að tollur séu á bilinu 5 – 15%.  Vörugjald er á ýmsum vörutegundum, t.d. er hann 45% af flestum bifreiðum.

20. Þarf ég að sækja vöruna eða er hún send heim til mín? 
Frá og með 16. nóvember 2005 mun Íslandspóstur annast heimsendingar allra vara fyrir ShopUSA á Íslandi án aukakostnaðar.   
 

21. Hvað ef netsíða hafnar kreditkorti?
Kerfi sumra netfyrirtækja leyfa ekki að senda vöru á annan stað (shipping address) en greiðslustað (billing address).  Láttu senda reikninginn á sama stað og vöruna, þ.e.a.s. í vöruhús okkar í Norfolk

Stundum bera netverslanir saman "billing address" á kreditkorti og "shipping address" fyrir vörusendingu.  Þú getur haft samband við greiðslukortafyrirtækið þitt og beðið um að 1424 Baker Road, Virginia Beach, Virgina 23455 verði auka-heimilisfang á skrá (secondary billing address).  Þetta gæti liðkað fyrir því að seljandi samþykkti skuldfærslu á kreditkortið þitt.  

Í sumum tilfellum er hægt að greiða vöru með "wiretransfer" (bankamillifærslu), en þú skalt áður ganga úr skugga um áreiðanleika seljanda.  Við mælum ekki með bankamillifærslum ef verið er að versla við einstaklinga, t.d. á eBay.  

Stundum er of mikil fyrirhöfn að versla við netverslanir sem ekki taka kreditkort.  Því er oft auðveldara að finna sambærilega vöru hjá annari netverslun.  Á forsíðu ShopUSA eru aðeins tenglar við netverslanir sem hafa samþykkt íslensk greiðslukort og hafa veitt góða þjónustu.  Við ábyggjumst þó ekki að allar færslur verði samþykktar, sérstaklega ef um háar fjárhæðir er að ræða.

22. Hvernig greiði ég netverslun ef ég er ekki með kreditkort ?
Til þess að versla á netinu þarf í flestum tilfellum að vera með kreditkort. Þeir sem ekki vilja vera með hefðbundið kreditkort en vilja notfæra sér hagræði og ýmis fríðindi kreditkorts án þess að skulda geta fengið sér VISA í + eða Mastercard Plús sem eru fyrirfram greidd kreditkort. Engin lán eða reikningar. Það er  einungis er hægt að ráðstafa þeirri fjárhæð sem greidd hefur verið inn á kortreikninginn hverju sinni. Þá má nefna að margir vilja fara varlega í viðskiptum á vefnum þegar gefa þarf upp kortnúmer og forðast að reynt verði að misnota aðalkreditkort þeirra og fá sér því til viðbótar fyrirframgreitt kort.

23. Hvað er PayPal
PayPal er greiðslumiðlunarfyrirtæki í eigu eBay.  Þegar þú stofnar PayPal reikning þá skuldfæra þeir ca. $2 á kreditkortið þitt og senda lykilorð með reikningsfærslunni.  Þannig er tryggt að enginn geti fengið lykilorðið annar en sá sem hefur aðgang að kreditkortareikningi.  PayPal er milliliður á milli kaupenda og seljanda á eBay.  Standi seljandi ekki við afhendingu á vöru þá getur þú hafnað greiðslu innan tiltekins tíma og verður greiðslan þá bakfærð.  Seljandi greiðir PayPal þóknun vegna viðskiptanna, en ekki kaupandi.  Sjá nánar á www.paypal.com

Athugaðu að þú getur líka hafnað greiðslu hjá greiðslukortafyrirtæki þínu hafi seljandi ekki afhent vöruna, eða ekki í því ástandi sem hann lofaði.

24. Er öll vara flutt með flugi til landsins?
Flestir pakkar eru sendir með flugi til Íslands. Þetta gildir um alla kassa og pakka þar sem hver hlið er styttri en 50 cm. Sjófrakt er notuð fyrir stærri hluti svo sem bifreiðar, sófasett, vélsleða, mótorhjól, og ótal margt fleira.  Flugsendingar fara frá Virginia hvern Laugardag. Sumar vörur eins og hárspray og svitalyktareyðir í spreybrúsum fá ekki að fara í flug vegna sprengihættu, einstakir varahlutir geta ekki farið í flug vegna olíuleka og fleiri spilliefna, airbags mega ekki fara í flug. Athugið að hreinsiefni í plastbrúsum þolir ekki mikinn þrýsting og þannig mælum við með að þið setjið ítarlega í skráninguna hjá okkur "NOT AIR" ef þið eruð viss um að þetta megi ekki fara með flugi. 

25. Eru allar amerískar vörur leyfðar á Íslandi?
Þó heimilt sé að flytja flestar vörutegundir til landsins eru nokkrar undantekningar þar á.  ShopUSA tekur ekki að sér að flytja vöru sem er ólögleg á Íslandi.  Kaupandi er hvattur til að kynna sér gaumgæfilega íslensk lög og reglugerðir um vöruinnflutning.  ShopUSA ábyrgist ekki að vörur sem fluttar eru á þess vegum standist ákvæði íslenskra laga og reglugerða.  Kaupandi er ábyrgur fyrir kostnaði ef vörur fást ekki tollafgreiddar.

26. Er einstaklingum leyfilegt að flytja inn fellihýsi ?
Fellihýsi og tengivagnar sem fluttir eru til Íslands þurfa meðal annars að uppfylla kröfur umferðarlaga.  Í mörgum tilfellum er nauðsynlegt að yfirfara og breyta hemla- og ljósabúnaði.  Enda þótt fellihýsin standist strangar kröfur í Bandaríkjunum þá eru lög og reglugerðir ekki þær sömu og innan EES. 

Allar vörur sem falla undir reglur um tæki sem brenna gasi verða að uppfylla ákæði laga nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum og reglna nr 108/1996 um tæki sem brenna gasi.  Við mælum með því að þú snúir þér til opinberra aðila sért þú í vafa um hvort fellihýsið sem þú hyggst kaupa standist íslenskar kröfur.

27. Hvað með raftæki fyrir amerískan straum?
Flest raftæki sem seld eru í Bandaríkjunum eru hönnuð fyrir 110 volta spennu. ShopUSA mælir með að þú kaupir raftæki sem gerð fyrir evrópska staðla (t.d. CE merkt og 220 volta spenna). Algengt er að tölvur hafi innbyggðan spennubreyti sem þarf að stilla við móttöku. Nokkur tæki eru gerð fyrir vítt spennubil og taka bæði 110 og 220 volta straum.  Athugið að flestar snúrur hafa ameríska tengla. Athugið að DVD tæki geta í sumum tilfellum einungis lesið diska frá ákveðnum svæðum. Flest videó og sjónvarpstæki eru gerð fyrir NTSC kerfið, sjá spurningu nr. 22 að neðan.  

Kaupendur eru hvattir til að kynna sér gaumgæfilega kröfur til raftækja á Íslandi. Nánari upplýsingar er hægt að fá á vefsíðu Neytendastofu, eða á www.neytendastofa.is

28. Hvað með amerísk sjónvörp (NTSC)?
Nær öll sjónvörp og myndbandstæki framleidd í Bandaríkjunum eru hönnuð fyrir NTSC-kerfið sem er ólíkt PAL-kerfinu á Íslandi.  Í nær öllum tilfellum er því ekki mögulegt að nota  amerískt sjónvarpstæki á Íslandi nema með   sérstökum breyti (converter).  Sendu tölvupóst á
service@ShopUSA.is ef þig vantar upplýsingar um sjónvarpsmerkjabreyta.

29. Hvað með íslensk lyklaborð og íslenska stafi fyrir tölvur?
Flestar bandarískar tölvur eru seldar með stöðluðu lyklaborði (QWERTY), en hafa ekki íslenska stafi.  Flest stýrkerfi bjóða upp á stillngar fyrir mismunandi tungumál, t.d.  Windows® stýrikerfin frá Microsoft®.   Til að stilla lyklaborð fyrir íslenska stafi í Windows XP þá smellir þú á "Start" hnappinn neðst í vinstra horni, velur  Settings / Control Panel / Regional and Language Options og smellir síðan á "Languages" flipann og svo "Details" hnappinn.  Þar er hægt að bæta við íslensku með því að smella á "Add" takkann. Athugið að einnig er hægt að forrita flýtilykla til skipta á milli ensku og íslensku, t.d. með Control og Shift. Þú getur farið í næstu tölvuverslun og nálgast límmiða til að setja á lyklaborðið.

30. Er óhætt að eiga viðskipti við allar erlendar vefsíður?
Kaupendur eru hvattir til að kynna sér áreiðanleika seljanda. ShopUSA mun umsvifalaust fjarlægja tengla við netverslanir sem talið er að séu ekki öruggar og eru ábendingar í því efni vel þegnar. Ýmsir aðilar bjóða upplýsingar og umsagnir um seljendur, t.d. www.bbb.com

31. Get ég treyst því að rétt upphæð sé skuldfærð á greiðslukortið?
Kaupandi er hvattur til að yfirfara allar færslur á greiðslukorti og tilkynna banka eða greiðslukortafyrirtæki tafarlaust rangar færslur.  Þú hefur nokkurra vikna frest til að hafa samband við greiðslukortafyrirtækið og hafna greiðslu sem ekki hefur verið færð á kortið þitt með lögmætum hætti.

32. Eru vörur ávallt til á lager?
Mjög er misjafnt hvort vörur séu til á lager hjá seljendum þegar pöntun berst.  Venjulega fær kaupandi strax staðfestingu á því hvort varan sé til og hve langan tíma taki að afgreiða hana frá seljanda. 

33. Hvað er afgreiðslugjald á Íslandi og FOB verð?
Á Íslandi er lagt afgreiðslugjald á FOB verð vörunnar í USD.  FOB-verð er verð frá seljanda í Bandaríkjunum, sem samanstendur af:
a) verði vöru
b) flutningskostnaði innan USA til Norfolk  -  sem í sumum tilfellum er innifalinn í verði og
c) söluskatti í Bandaríkjunum  - sem stundum er enginn af netverslun

Fob Verð:
Verð vöru
+ flutningskostnaður frá verslun til vöruhúss í Norfolk (stundum innifalinn i verði)
söluskattur (oft ca 4,5%) í Bandaríkjunum (stundum enginn af netverslun).
= FOB verð


Afgreiðslugjaldið nær yfir allan kostnað til kaupanda, þar með talið:
toll
VSK
sjófrakt
tollskýrslugerð
móttökukostnað og umsjón

ATH: Bifreiðar eru höndlaðar á annan hátt og hvetjum við þig til að skoða flokkinn  "Ökutæki" á síðunni okkar.

34. Hvað er tollgengi?
Hjá Seðlabanka Íslands er hægt að fá upplýsingar um tollgengi. Tollgengið er lagt til grundvallar þegar verð vöru er umreiknað úr USD í íslenskar krónur. Athugaðu að tollgengið er síbreytilegt. Tollur reiknast út frá tollgengi þegar vara er tollafgreidd, eftir komu hennar til Íslands. Varan getur því ýmist hækkað eða lækkað í verði frá því pöntun var gerð.  Ef breytingar á gengi eru innan við 5% frá skráningardegi (kaupdegi) og til þess dags sem varan er afgreidd, þá mun ShopUSA standa við það verð sem reiknivélin áætlaði (að því gefnu að rétt fjárhæð í USD og réttur vöruflokkur hafi verið valinn).

35. Get ég fengið tölvupóst um sérstök tilboð?
Flestar netverslanir bjóða þér að skrá nafn þitt og fá reglulega sendan tölvupóst um nýjustu tilboðin hverju sinni. Stundum áskilja þau sér rétt til að veita öðrum aðilum upplýsingar um netfangið þitt. Oftast biðja þau þig um leyfi fyrir slíku fyrirfram. 

36. Akstursleiðbeiningar í vöruhús ShopUSA,
1424 Baker Road, Virginia Beach, Virginia 23455:   
Þú þarft yfirleitt ekki að gefa akstursleiðbeiningar, verslunin og öll helstu póstþjónustu félög (s.s. FedEx og UPS) þekkja heimilisfang ShopUSA.  Athugaðu að vöruhús okkar er lokað um helgar.  En ef svo ólíklega vill til að þú færð tölvupóst frá versluninni eftir að pöntun hefur verið staðfest þar sem beðið er um akstursleiðbeiningar, þá getur þú notað www.mapquest.com

37. Hvað með matvæli?
Matvæli sem flutt eru til Íslands til endursölu þurfa m.a. að uppfylla skilyðri um innihaldslýsingu.   Ólíkar kröfur eru gerðar í Bandaríkjunum og í Evrópu.  Við hvetjum þig til að kynna þér kröfur til innflutnings matvæla hjá opinberum aðilum áður en vara er keypt í USA.  Ef óheimilt reynist að afgreiða matvæli sem flutt hafa verið til Íslands, áskilur ShopUSA sér rétt til að innheimta útlagðan kostnað.  Því miður er ekki unnt að taka við kæli- og frystivöru.

38. Gæludýrafóður
Allt gæludýrafóður sem flutt er til Íslands verður að fá samþykki opinberra aðila.

39. Geisladiskar óritaðir
Athugið auka álag sem legst ofan á óritaða geisladiska. Miða við 25 kr stk CD-R og 50 kr stk DVD 4,5GB

40. Hverjir eru kostirnir við að nota þjónustu ShopUSA.is?
· ShopUSA opnar þér dyr til að versla við þúsundir seljenda um öll Bandaríkin.
· Þú getur keypt ótal vörutegundir sem eru ófáanlegar á Íslandi
· Reiknivélin efst á síðunni auðveldar þér verðsamanburð á Íslandi.
. Leitarvélar leita að lægsta mögulega verði á Netinu
. Á síðum ShopUSA má finna margvíslegar upplýsingar um allar hliðar netviðskipta
. Á síðum ShopUSA finnur þú tengla við traustar og vinsælar netverslanir
· Öll vörukaup eru gerð af tölvunni heiman frá þér
· Traustir aðilar sjá um móttöku, flutning, tollafgreiðslu og afhendingu vörunnar
· Þú getur verslað allan sólarhringinn árið um kring.
· Netverslun er EINN ódýrasti verslunarmáti sem til er


41. Fæðubótaefni og lyf
Hafið samband við Lyfjaeftirlit og fáið uppgefið hvort lyf eða fæðubótaefni sem leyfilegt á Íslandi fyrir pöntun.  Einnig bendum við á www.Lyfjastofnun.is en þar má finna margvíslegar gagnlegar upplýsingar.

42. Skotvopn og aukahlutir
Hafið samband við lögreglu um leyfi fyrir skotvopnum og aukahluti áður en kaup framkvæmd.

43. Fjarstýringar, talstöðvar og tíðni
Allar fjarstýringar og barnatalstöðvar verða að vera CE merktar. Ef vara sem sendir þráðlaust er ekki CE merkt þá verður varan stoppuð í tollinum. Fáið uppgefið hjá framleiðanda/Seljanda áður en influtningur hefst.

44. Sölulaun
ShopUSA Inc. býður hverjum þeim sem aðstoðar við skráningu hjá ShopUSA 5 dollara í sölulaun.  Sölulaunin eru greidd í formi afsláttar þegar lágmark 10 sendingar hafa verið skráðar.   Þú getur hvenær sem er unnið þér inn sölulaunin, jafnt þegar þú skráir eigin sendingar eða þegar þú aðstoðar aðra við að skrá sendingu hjá ShopUSA.   Með þessu vill ShopUSA verðlauna sérstaklega þá sem oftast panta hjá ShopUSA svo og alla þá hjálpfúsu sem opna öðrum möguleika Netsins.  ATHUGA SKAL AÐ ÞAÐ ÞARF AÐ SENDA EMAIL Á service@shopusa.is EF FLEIRI EN 10 PANTANIR HAFA VERIÐ SKRÁÐAR Í KERFIÐ - VIÐ HANDFÆRUM INN AFSLÁTTINN.

45. Tölvur og rafmagn 
Athugið að skoða rafmagn aftan á tölvum áður en þú setur hana í gang. Oftast er takki aftan á tölvunni til að skipta úr 120V í okkar rafmagn sem er 220-230V.

46. Farsímar og þráðlausir símar
Athugið að allir farsímar og þráðlausir símar verða að vera CE merktir svo varan sé lögleg inn í landið. Vinsamlegast kynnið ykkur þessi mál áður en varan er keypt.

47. Aðrar spurningar
Sendu okkur fyrirspurn á Service@ShopUSA.is eða lestu leiðbeiningar okkar um netverslun með því að smella hér


Hvenær sem er  - allan sólarhringinn
Hvar sem er - þúsundir verslana
Hvað sem er - milljónir vörutegunda

1. SUITE NÚMER

2. SENDA VÖRUNA TIL SHOPUSA

3. SKRÁ VÖRUNA ÁSAMT REIKNINGI 



 

1. Kauptu
...
hvað, hvar og hvenær sem er í USA í yfir 
100.000 verslunum
(Mundu eftir
"Suite númeri")
 

Smelltu hérna til að fá úthlutað suite-númeri 


 

2. Láttu senda... 
vöruna í vöruhús ShopUSA merkt 
suite-númerinu þínu
 



 

3. Skráðu vöruna...
í gegnum
skráningarferli ShopUSA og við komum henni til Íslands, greiðum af henni gjöldin og afhendum þér.


Reikningur/Invoice frá seljanda verður að fylgja (engin reikningur- engin tollafgreiðsla)
Sýnishorn af PayPal reikning. 
Sama gildir um aðra reikninga.






Ford F-150
2001-2007
eBaymotors.com
Autotrader.com

Allir Ford á eBay


Jeep Cherokee Grand L.
2001-2007

eBaymotors.com
Autotrader.com

Allir Jeep á eBay


BMW 5-Series
2001-2007

eBaymotors.com
Autotrader.com

Allir BWM á eBay



Mercedes Benz M
2001-2007
eBaymotors.com
Autotrader.com

Allir M. Benz á eBay



Mitsubishi Montero
2001-2007
eBaymotors.com
Autotrader.com

Allir Mitsubishi á eBay


Ford Explorer
2001-2007
eBaymotors.com
Autotrader.com

Allir Ford á eBay



Dodge RAM
2001-2007

eBaymotors.com
Autotrader.com

Allir Dodge á eBay




BMW 
2001-2007

eBaymotors.com

 
Kawasaki
2001-2007

eBaymotors.com


Harley Davidson
2001-2007

eBaymotors.com


Honda
2001-2007

eBaymotors.com






 

Rekja Sendingu Skilmálar ShopUSA Um ShopUSA

Sendu okkur e-mail


ShopUSA 1424 Baker Road, Virginia Beach (VA) 23455  Service@ShopUSA.is
© 2001 - 2010 allur réttur áskilinn ShopUSA Inc.