Fjöldinn allur hefur nýtt sér ShopUSA til að kaupa handverkfæri
frá Bandaríkjunum, KitchenAid hrærivélar og ýmislegt annað sem
fellur undir þennan vöruflokk. Úrvalið er meira og verðið er
fjölbreyttara en þig grunar.
Þegar raftæki eru keypt þarf að vara sig á straumnum - kaupa
raftæki með 220 volta straum - eða kaupa straumbreyti til að fá
réttan straum. Ekki er ráðlagt að kaupa vörur eins og brauðristar,
hárblásara eða aðra slíka vöru í þessum vöruflokki frá Bandríkjunum
og við hvetjum ykkur til að vera ávallt viss um hvað þið eruð að
kaupa - að fullvissa ykkur um að varan muni virka eins og til er
ætlast þegar heim er komið. Bendum ykkur á að kynna ykkur vel
"spurt og svarað" á síðunni okkar áður en þið takið ákvörðun um
kaup á raftækjum.
Hér eru örfáir tenglar - en þeir eru miklu, miklu fleiri sem þér
standa til boða.